Krítartafla með áletruninni „Kanínuholan – fornbókaveröld“ fyrir ofan bókahillur

UM KANÍNUHOLUNA

Kanínuholan er fornbókaveröld, staðsett í bílskúr í Holtunum í Reykjavík. Þar má finna gnægð bóka úr stærðarinnar safni Geirlaugs Magnússonar skálds, föður bóksalans. Í Holunni má einnig finna bækur sem berast henni með öðrum leiðum. Höfuðmarkmið Kanínuholunnar er að bækur endi í höndunum á bókelskandi fólki.

Móheiður Hlíf Geirlaugsdóttir er bóksali Kanínuholunnar. Hún er bókavörður, útgefandi, skáld og þýðandi, svo eitthvað sé nefnt. Hún er iðulega kölluð Móa og auk bókahirðu hefur hún stundað garðyrkju af miklum móð undanfarin ár auk framleiðslu á smyrsli úr morgunfrúm (undir heitinu Ormarnir Blómsdóttir, fæst auðvitað í Holunni). Umfram allt er Móa óforbetranlegur bókaormur, köllun sem glæðir Holuna einstöku lífi jafnt sem litum.

Móa bóksali situr við skákborð fyrir framan fullar bókahillur
Kanínuholan að innan: bókahillur, stór pottaplanta og krítartafla á vegg
Lampaskermur með kögri fyrir framan töflu með ljósmyndum og handskrifuðum lista
Götuð veggtafla með miðum, ljósmyndum og veggspjaldi um bókmenntahátíð
Mokkakanna á hellu, kaffibollar og bækur á borði í Kanínuholunni

Eltu @kaninuholan​