Það sem kann að leynast í eyra mínu

Það sem kann að leynast í eyra mínu

5.000 kr.

Flokkur:

Höfundur: Mosab Abu Toha

Þýðandi: Móheiður Hlíf Geirlaugsdóttir

Útgefandi: Kanínuholan ehf

Á sögulegum tímum þegar þörfin fyrir mannlegar sögur frá Gaza er brýnni en nokkru sinni fyrr, kynnir útgefandinn Kanínuholan með stolti ljóðabókina, Það sem kann að leynast í eyra mínu, mögnuðu verki eftir palestínska skáldið og Pulitzer-verðlaunahafa Mosab Abu Toha.

Hér er um að ræða veglega útgáfu sem safnað var fyrir með
forsölu á Karolinafund, bókin er 147 síður og með nokkrum myndum eftir íslenska myndlistamenn bæði á forsíðu sem og inni í bókinni.

Bókin er ómetanlegur vitnisburður um lífið undir hernámi og er gefin út á íslensku í þýðingu Móheiðar Hlífar Geirlaugsdóttur. Mosab Abu Toha fæddist í flóttamannabúðum og hefur helgað líf sitt því að gefa þeim rödd sem þaggað hefur verið niður í. Hann hlaut hin virtu Pulitzer-verðlaun fyrir ritgerðir sínar í The New Yorker þar sem hann skrifaði um staði og fólk sem nú eru mörg hver horfin í rústirnar. Ljóð hans eru beitt, harmræn og ógleymanleg áminning um afleiðingar stríðs og aðskilnaðarstefnu.

Kápa bókarinnar Það sem kann að leynast í eyra mínuÞað sem kann að leynast í eyra mínu
5.000 kr.